Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum mars

Ljómi frá Hnjúki í Vatnsdal, sonur Risa 15014 og Ljómu 558.
Ljómi frá Hnjúki í Vatnsdal, sonur Risa 15014 og Ljómu 558.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú í mars, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru að morgni hins 11. apríl.

Þegar áður nefndar niðurstöður voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 479 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 123 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 23.959,1 árskýr á búunum 479 reyndist 6.336 kg eða 6.329 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 50,0.

Mest meðalnyt árskúa undanfarna 12 mánuði reyndist á búi Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt eftir árskú reiknaðist 8.827 kg. á tímabilinu. Næst á listanum var bú Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, þar sem nytin eftir hverja árskú var 8.687 kg. Þriðja í röðinni reiknaðist bú Arnfríðar Jóhannsdóttur í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi, þar sem meðalnyt árskúa reiknaðist 8.521 kg. Fjórða búið nú við lok marsmánaðar var bú bú Páls Jóhannssonar í Núpstúni sem einnig er í Hrunamannahreppi þar sem meðalárskýrin mjólkaði á fyrrnefndu tímabili 8.511 kg. Fimmta búið nú var bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóahreppi þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.366 kg. mjólkur á tímabilinu.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Bára 523 (f. Sandur 07014) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 14.305 kg. Næst á eftir henni, eins og fyrir mánuði, kom Snúra 546 (f. Dúllari 07024) í Dalbæ 1 í Hrunamannahreppi en afurðir hennar reiknuðust 13.839 kg. á 12 mánuðum. Þriðja í röðinni að þessu sinni var kýr nr. 847 á Hlaðhamri við Hrútafjörð vestanverðan sem mjólkaði 12.997 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða kýrin var Alda 1847 (f. Unnar 14058) á Hvanneyri í Andakíl en nyt hennar var 12.970 kg. á tímabilinu. Fimmta var Stunga 386 (f. Kaktus 16003) sem mjólkaði 12.896 kg. undanfarna 12 mánuði.

Alls náðu 105 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir mars hafði verið skilað frá að morgni hins 11. apríl, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 23 yfir 12.000 kg. á tímabilinu og af þeim skiluðu tvær meiri nyt en 13.000 kg. Önnur af þeim síðastnefndu mjólkaði yfir 14.000 kg. eins og fram kemur hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,0 en árskýrnar þar voru að jafnaði 25,5 við lok mars. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 6.102,8 kg.

Meðalfallþungi 9.685 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, sem slátrað var frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 254,2 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra gripa við slátrun var 749,0 dagar.

 

Sjá nánar:

https://www.rml.is/is/forrit-og-skyrsluhald/nautgriparaekt/huppais-nidurstodur-2022

 

/sk