Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum október

Feykir frá Haga í Gnúpverjahreppi, undan Hæl 14008 og Jennu 364.
Feykir frá Haga í Gnúpverjahreppi, undan Hæl 14008 og Jennu 364.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar fyrir október, hafa nú verið birtar á vef okkar. Niðurstöður skýrslnanna byggjast á skilum eins og þau voru laust eftir hádegi þann 11. nóvember.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 499 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 121 bús þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.798,2 árskúa á búunum 499 reyndist 6.362 kg eða 6.478 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á fyrrgreindum búum var 49,7.

Mest meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var á búi Guðrúnar og Gunnars á Búrfelli í Svarfaðardal, 8.873 kg. Næst í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit hvar meðalnyt eftir árskú reiknaðist 8.534 kg. á tímabilinu. Þriðja búið nú var bú Guðjóns og Helgu á Syðri-Hömrum 3 í Ásahreppi í Rangárvallasýslu þar sem hver árskýr mjólkaði að jafnaði 8.386 kg. Hið fjórða í röðinni reyndist vera bú Gísla og Jónínu á Stóru-Reykjum í Flóahreppi þar sem meðalnyt árskúnna var 8.337 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fimmta var bú Sigurðar og Fjólu í Skollagróf í Hrunamannahreppi þar sem meðalárskýrin mjólkaði að meðaltali 8.323 kg. síðustu 12 mánuðina.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuði var Fata 2106 (f. Sjarmi 1290) í Skáldabúðum í hinum forna Gnúpverjahreppi, sem mjólkaði 14.976 kg. á umræddu tímabili. Hið næsta henni í röðinni var Fórn 868 (f. Skalli 11023) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð, sem mjólkaði á tímabilinu 14.161 kg. Þriðja að þessu sinni reyndist kýrin Lúsý 555 (f. Gustur 09003), einnig í Flatey, en nyt hennar var 13.795 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða efst nú í lok október var Bambaló 306 (f. Bambi 08049) á Brúsastöðum í Vatnsdal sem mjólkaði 13.521 kg. á uppgjörstímabilinu. Fimmta kýrin að þessu sinni var Skoppa 64 (f. Lögur 07047) í Lyngbrekku á Fellsströnd í Dölum sem mjólkaði 13.174 kg. á síðustu 12 mánuðum.

Alls náði 131 kýr á mjólkurframleiðslubúunum sem afurðaskýrslum fyrir október hafði verið skilað frá um hádegisbilið þ. 11. nóvember, að mjólka 11.000 kg. eða meira á síðustu 12 mánuðum. Af þeim mjólkuðu 42 yfir 12.000 kg. á uppgjörstímabilinu. Af þeim skiluðu átta meiri nyt en 13.000 kg. og tvær þeirra mjólkuðu yfir 14.000 kg. eins og sjá má hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á hreinu kjötframleiðslubúunum reiknaðist 26,4 eins og í síðasta mánuði en árskýrnar þar voru nú við lok október að meðaltali 23,3. Meðalkjötframleiðsla á þessum búum sl. 12 mánuði reyndist 5.502,2 kg.

Meðalfallþungi 9.353 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 256,6 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 753,1 dagur.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk