Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í apríl 2017

Ofnir frá Halllandi á Svalbarðsströnd
Ofnir frá Halllandi á Svalbarðsströnd

Niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni í nýliðnum apríl, hafa nú verið birtar á vef okkar. Þegar þær niðurstöður urðu til skömmu fyrir hádegið þann 11. maí, höfðu skýrslur borist frá 564 búum. Reiknuð meðalnyt 24.817,4 árskúa á þessum búum, var 6.046 kg á síðustu 12 mánuðum og hafði aukist um 9 kg. frá fyrra mánuði. Meðalfjöldi árskúa á búunum sem tölum hafði verið skilað frá á fyrrnefndum tíma, var 44,0.

Búið þar sem meðalnyt árskúa var mest á síðustu 12 mánuðum var hið sama og við seinustu uppgjör, bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, en hver árskýr mjólkaði þar 9.072 kg. á tímabilinu. Næstu bú í röðinni, líkt og seinast var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem árskýrin skilaði að jafnaði 8.288 kg. á tímabilinu. Bú Þrastar Þorsteinssonar á Moldhaugum við Eyjafjörð var einnig hið þriðja í röðinni nú, eins og við lok mars, en þar mjólkaði meðalárskýrin 8.113 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða í röðinni, enn hið sama og við seinasta uppgjör, var Félagsbúið á Espihóli í Eyjafjarðarsveit þar sem hver árskýr skilaði að meðaltali 8.066 kg á tímabilinu. Fimmta á listanum við lok apríl var bú Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal. Þar skilaði meðalárskýrin 8.060 kg. síðustu 12 mánuðina. Búin sem hér eru talin eiga það sammerkt að skýrslum um nyt þar hefur verið skilað jafnt og þétt undanfarið ár.

Nythæsta kýrin við uppgjörið nú var Pollýanna (f. Hegri 03014) á Brúsastöðum í Vatnsdal en hún mjólkaði 13.521 kg. á tímabilinu. Næst henni gekk Korna 150 (f. Hræsingur 98046), einnig á Brúsastöðum, en hún skilaði á tímabilinu 13.509 kg. Þriðja var kýr nr. 791 (f. Askur 674 undan Rjóma 07017) á Innri-Kleif í Breiðdal eystra, sem mjólkaði 13.220 kg. síðustu 12 mánuði.

Alls náðu 33 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir apríl hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegi þ. 11. maí, að mjólka yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum. Af þeim reiknuðust 7 hafa mjólkað yfir 12.000 kg. og þrjár af þeim mjólkuðu meira en 13.000 kg.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk