Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í janúar 2020

Randi frá Hjartarstöðum í Eiðaþinghá, undan Sjarma 12090 og Rák 699, undan Hrygg 05008.
Randi frá Hjartarstöðum í Eiðaþinghá, undan Sjarma 12090 og Rák 699, undan Hrygg 05008.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar í nýliðnum janúar hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var fyrir hádegi þ. 11. febrúar 2020.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 523 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 107 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 25.084,2 árskúa á þessum 523 búum var 6.416 kg eða 6.667 kg OLM (orkuleiðrétt mjólk) á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum 523 var 48,0.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.863 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit og þar var meðalnyt árskúnna 8.414 kg. Þriðja búið í röðinni var bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem meðalárskýrin skilaði 8.399 kg. mjólkur. Fjórða var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð þar sem meðalafurðir árskúnna námu 8.379 kg. síðustu 12 mánuði. Fimmta að þessu sinni var bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal með meðalnytina 8.338 kg. eftir árskú. Meðalnytin eftir árskú á Hvanneyrarbúinu var 8.336 kg. og það því hið sjötta í röðinni um síðustu mánaðamót.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Svana 753 (f. Gráni 608, dóttursonur Ófeigs 02016 og sonarsonur Lóa 01008) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð en nyt hennar reyndist 13.895 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni var Muska 589 (f. Klettur 08030) á Grund í Svarfaðardal sem mjólkaði 13.719 kg. síðustu 12 mánuði. Þriðja nythæsta við uppgjörið nú var kýr nr. 643 (f. Svipur 10038) í Lyngbrekku á Fellsströnd í Dölum en hún mjólkaði 13.625 kg. á tímabilinu. Fjórða í röðinni var síðan Píla 1288 (f. Afli 11010) í Garði í Eyjafjarðarsveit, sem skilaði undanfarna 12 mánuði 13.460 kg. mjólkur. Fimmta kýrin að þessu sinni var Aría 895 (f. 767 afkomandi Teins 97001, Ófeigs 02016 og Lóa 01008) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.124 kg.

Alls náðu 135 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir janúarmánuð hafði verið skilað frá undir hádegi þ. 11. febrúar að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 28 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og af þeim voru fimm sem mjólkuðu meira en 13.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 22,1 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 18,9. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.120,2 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 243,7 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 744,0 dagar.

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk