Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í júní

Hólmi frá Halllandi á Svalbarðsströnd undan Jörfa 13011 og Öldu 1131
Hólmi frá Halllandi á Svalbarðsströnd undan Jörfa 13011 og Öldu 1131

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar við lok nýliðins júnímánaðar eru nú sýnilegar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var um miðjan dag þ. 13. júlí 2020.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 514 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 109 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.802,9 árskúa á fyrrnefndum 514 búum var 6.511 kg eða 6.796 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á búunum 514 var 48,3.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.979 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúa var 8.723 kg. Þriðja búið í röðinni nú í lok maí var bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.612 kg. Fjórða búið að þessu sinni var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð en meðalnyt árskúnna þar reyndist 8.358. kg. á tímabilinu. Hvanneyrarbúið var síðan í fimmta sæti með meðalnyt upp á 8.350 kg. eftir árskú.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Trappa 1832 í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 14.466 kg. en hún hefur ekki skráðan föður í skýrsluhaldskerfinu. Önnur í röðinni nú var Ása 501 (f. Pipar 12007) á Litlu-Reykjum í Flóa sem mjólkaði 13.905 kg. Þriðja í röðinni að þessu sinni reyndist vera Staka 1321 (f. Sandur 07014) í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en nyt hennar var 13.866 kg. á síðustu 12 mánuðum. Fjórða var Krissa 756 (f. Baldi 06010) á Brúsastöðum í Vatnsdal sem mjólkaði 13.764 kg. á tímabilinu sem hér um ræðir. Fimmta kýrin nú var Píla 1288 (f. Afli 11010) í Garði í Eyjafjarðarsveit, sem skilaði undanfarna 12 mánuði 13.132 kg. nyt.

Alls náðu 122 kýr á búunum 514, sem afurðaskýrslum fyrir júní hafði verið skilað frá nú eftir hádegi þ. 13. júlí að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 34 nyt yfir 12.000 kg. á tímabilinu og af þeim hópi náðu sex kýr að mjólka meira en 13.000 kg. Enn fremur skal þess getið að kýrin sem mest mjólkaði, fór mikið yfir 14.000 kg., eins og sést hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 24,5 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 20,3. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.297,3 kg.

Meðalfallþungi 9.345 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 245,4 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 745,2 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk