Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í maí

Faðmur frá Villingadal í Eyjafirði, undan Hálfmána 13022 og Klukku 352
Faðmur frá Villingadal í Eyjafirði, undan Hálfmána 13022 og Klukku 352

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar við lok maí síðastliðins eru nú sýnilegar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim um hádegi þ. 11. júní 2020.

Þegar niðurstöðurnar sem nú hafa verið birtar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 506 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 110 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.557,4 árskúa á fyrrnefndum 506 búum var 6.499 kg eða 6.779 kg OLM (af orkuleiðréttri mjólk) síðustu 12 mánuðina. Meðalfjöldi árskúa á búunum 506 var 48,5.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á Hurðarbaksbúinu ehf. á Hurðarbaki í Flóa, þar sem meðalárskýrin mjólkaði 9.080 kg. Annað í röðinni var bú Guðlaugar og Eybergs á Hraunhálsi í Helgafellssveit þar sem meðalnyt árskúa var 8.647 kg. Þriðja búið í röðinni nú í lok maí var bú Friðriks Þórarinssonar á Grund í Svarfaðardal þar sem meðalnyt árskúnna reiknaðist 8.574 kg. Fjórða búið að þessu sinni var bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd þar sem meðalárskýrin skilaði 8.413 kg. mjólkur. Meðalnytin eftir árskú á Hvanneyrarbúinu reyndist 8.379 kg. og var það því í fimmta sæti við uppgjör maímánaðar.

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði var Trappa 1832 í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 14.676 kg en hún hefur ekki skráðan föður í skýrsluhaldskerfinu. Önnur í röðinni nú var Krissa 756 (f. Baldi 06010) á Brúsastöðum í Vatnsdal sem mjólkaði 13.436 kg á tímabilinu. Þriðja nythæsta kýrin að þessu sinni var Staka 1321 (f. Sandur 07014) í Skáldabúðum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en nyt hennar reyndist hafa verið 13.389 á síðustu 12 mánuðum. Fjórða var Björg 676 (f. Klettur 08030) á Hóli í Svarfaðardal sem mjólkaði 13.231 kg á tímabilinu. Fimmta á listanum að þessu sinni var kýrin Píla 1288 (f. Afli 11010) í Garði í Eyjafjarðarsveit, sem skilaði undanfarna 12 mánuði 13.141 kg mjólkur.

Alls náðu 108 kýr á búunum 506, sem afurðaskýrslum maímánaðar hafði verið skilað frá um hádegi þ. 11. júní að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 26 nyt yfir 12.000 kg. á tímabilinu og af þeim mjólkuðu 8 meira en 13.000 kg. Enn fremur skal þess getið að kýrin sem mest mjólkaði, komst langt yfir 14.000 kg, sbr. upptalninguna hér á undan.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 23,6 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 20,0. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.278,4 kg.

Meðalfallþungi 9.365 ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum, undanfarna 12 mánuði var 244,9 kg og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 745,7 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk