Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í maí

Brandur frá Glitstöðum í Norðurárdal - undan Lúðri 10067 og og Sóleyju 505
Brandur frá Glitstöðum í Norðurárdal - undan Lúðri 10067 og og Sóleyju 505

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar nú í nýliðnum maí hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess og hafa í huga við lestur að niðurstöðurnar í t.d. skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var laust fyrir hádegið þ. 11. júní 2019.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 514 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 103 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.636,9 árskúa á þessum 514 búum var 6.200 kg á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á þessum 514 búum var 47,9.

Meðalnyt árskúa var á síðustu 12 mánuðum, mest á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, hinu sama búi og undanfarna mánuði, þar sem hver árskýr skilaði nú að meðaltali 8.495 kg. Í öðru sæti nú var bú Gunnbjarnar ehf. í hinum forna Gnúpverjahreppi þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.332 kg. að jafnaði á síðustu 12 mánuðum. Þriðja í röðinni var bú bú Búkosta ehf. í Reykjahlíð á Skeiðum en þar var meðalnyt árskúa 8.199 kg. að þessu sinni. Fjórða sætið skipaði bú Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal. Meðalnyt árskúa þar var 8.162 kg. síðustu 12 mánuði. Fimmta á listanum var bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Þingeyjarsveit þar sem hver árskýr skilaði að jafnaði 8.131 kg. síðustu 12 mánuðina.

Nythæst sl. 12 mánuði líkt og fyrir mánuði síðan var kýrin Gola 694 (f. Þytur 09078) í Egilsstaðakoti í Flóa en nyt hennar var 15.675 kg. á tímabilinu. Önnur í röðinni á þeim lista var nú kýrin Árborg nr. 352 (f. 282 undan Gusti 09003) á Bakka í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu en hún mjólkaði 13.223 kg á undanförnum 12 mánuðum. Þriðja var Fríða 821 í Flatey á Mýrum í Hornafirði sem mjólkaði 13.155 kg. á tímabilinu. Fjórða í röðinni var kýr nr. 910, einnig í Flatey en nyt hennar reyndist 12.918 kg. á tímabilinu. Fimmta kýrin í röðinni var Hugrún 391 á Hnjúki í mynni Vatnsdals en nyt hennar var 12.481 kg. Alls náðu 77 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum maímánaðar hafði verið skilað frá skömmu fyrir hádegi þ. 11. júní, að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 11 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og þar af þrjár sem náðu að skila meira en 13.000 kg. Ein þeirra síðasttöldu skilaði meira en 15.000 kg. eins og fram hefur komið, sem verður að telja talsverð tíðindi.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 21,7 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 18,1 og meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 4.914,9 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 240,2 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 736,1 dagur.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk