Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktarinnar í september

Skýr frá Núpi 3 undir Vestur-Eyjafjöllum, Faðir Steri 13057 og móðir Terta 750.
Skýr frá Núpi 3 undir Vestur-Eyjafjöllum, Faðir Steri 13057 og móðir Terta 750.

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar frá í september hafa verið birtar á vef okkar. Rétt er að geta þess að niðurstöðurnar í skýrsluhaldi mjólkurframleiðenda byggjast á skilum mjólkurskýrslna og annarra skráninga eins og staðan á þeim var að morgni þ. 11. október 2019.

Þegar niðurstöðurnar voru reiknaðar höfðu borist mjólkurskýrslur frá 518 búum en uppgjör kjötframleiðslunnar náði til 106 búa þar sem var framleitt nautakjöt en ekki stunduð framleiðsla mjólkur til sölu. Reiknuð meðalnyt 24.854,2 árskúa á hinum fyrrnefndu 518 búum var 6.273 kg eða 6.523 kg OLM (orkuleiðrétt mjólk) á síðustu 12 mánuðum. Meðalfjöldi árskúa á búunum 518 var 48,0.

Meðalnyt árskúa síðustu 12 mánuði var mest á búi Karls Inga og Erlu Hrannar á Hóli í Svarfaðardal, hinu sama búi og undanfarið, þar sem hver árskýr mjólkaði nú að jafnaði 8.453 kg. Í öðru sæti nú var bú Eggerts, Jónu, Páls og Kristínar á Kirkjulæk í Fljótshlíð þar sem meðalárskýrin mjólkaði 8.353 kg. Þriðja búið í röðinni var bú Ólafar og Valgeirs í Hvammi á Barðaströnd og meðalnyt árskúnna þar reyndist 8.220 kg. síðustu 12 mánuði. Fjórða var bú Gunnbjörns ehf. í Skáldabúðum 2 í hinum forna Gnúpverjahreppi þar sem meðalárskýrin skilaði 8.195 kg. af mjólk á tímabilinu. Fimmta sætið vermdi bú Stóru-Tjarna ehf. á Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í Þingeyjarsveit þar sem nyt árskúnna reiknaðist að jafnaði 8.180 kg.  

Nythæsta kýrin sl. 12 mánuði reyndist vera Gola 694 (f. Þytur 09078) í Egilsstaðakoti í Flóa en nyt hennar var 13.874 kg. á tímabilinu sem um ræðir. Næst henni var Skuld 1539 (f. Aðall 02039) á Hvanneyri í Andakíl, móðir Bagga 14043 og Jötuns 17026, sem mjólkaði 13.663 kg. Þriðja í röðinni varð að þessu sinni Daufá 1866 (f. Gustur 09003) á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit sem mjólkaði 13.653 kg. Fjórða var Svana 753 (f. Gráni 608, dóttursonur Ófeigs 02016 og sonarsonur Lóa 01008) í Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem mjólkaði 13.445 kg. síðustu 12 mánuðina. Hin fimmta í röðinni nú var Dúna 464 (f. Muni 10018) í Ásgarði í Reykholtsdal sem mjólkaði 13.294 kg. Alls náðu 113 kýr á búunum, sem afurðaskýrslum fyrir septembermánuð hafði verið skilað frá að morgni þ. 11. október að mjólka 11.000 kg. og þar yfir á síðustu 12 mánuðum. Af þeim skiluðu 32 yfir 12.000 kg. nyt á tímabilinu og 7 þeirra mjólkuðu meira en 13.000 kg.

Meðalfjöldi kúa á kjötframleiðslubúunum reiknaðist 22,7 en árskýrnar reiknuðust að jafnaði 17,3. Meðalkjötframleiðsla á þeim búum sl. 12 mánuði reyndist 5.052,0 kg. Meðalfallþungi allra ungnauta á aldrinum 12-30 mánaða, skráðra í slátrun frá öllum búum undanfarna 12 mánuði var 242,5 kg. og reiknaður meðalaldur þeirra við slátrun var 740,6 dagar.

 

Sjá nánar:

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar

/sk