Óberon 17046 besta nautið fætt 2017

Óberon 17046. Mynd: NBÍ
Óberon 17046. Mynd: NBÍ

Óberon 17046 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum hlaut nafnbótina besta naut fætt árið 2017 og viðurkenningu Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands sem slíkt. Ræktendur Óberons eru Guðrún Helga Þórisdóttir og Jón Vilmundarson og veitti Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur hjá RML, þeim viðurkenninguna á Búgreinaþingi 12. febrúar sl. Óberon 17046 var fæddur 14. október 2017, undan Úranus 10081 frá Hvanneyri í Andakíl, en móðir hans var Mósaik 1036 frá Skeiðháholti 1 undan Skalla 11023 frá Steinnýjarstöðum á Skaga.

Í umsögn um dætur Óberons segir að þær séu mjög mjólkurlagnar en fituhlutfall í mjólk undir meðallagi og próteinhlutfall nokkuð lágt. Dætur Óberons eru meðalstórar og nokkuð háfættar kýr með fremur mikla boldýpt og útlögur og beina yfirlínu. Malirnar eru breiðar, beinar og þaklaga. Fótstaða sterkleg og fremur gleið. Júgurgerðin er góð, júgurband áberandi og þau vel borin. Spenar eru eilítið stuttir, hæfilega þykkir og örlítið útstæðir. Mjaltir eru mjög góðar og lítið um mjaltagalla. Skap meðalgott og skapgallaðir gripir fáir í hópnum. Þetta var í fertugasta skipti sem viðurkenning fyrir besta naut árgangs var veitt. Þau voru fyrst veitt árið 1986 fyrir besta nautið fætt árið 1979. Val á besta nauti árgangs er framkvæmt af Fagráði í nautgriparækt og eftir innleiðingu erfðamengisúrvals er það veitt á grunni erfðamats og afkvæmaprófunar. Þau bú sem oftast hafa hlotið viðurkenninguna eru Oddgeirshólar í Flóa, sem þrisvar sinnum hefur átt besta naut árgangs, Brúnastaðir í Flóa og Syðri-Bægisá í Öxnadal, sem tvisvar sinnum hafa átt besta naut árgangs. Nú bætist Skeiðháholt 1 í þann hóp en þetta er í annað skipti sem þau Helga og Jón hljóta þessa viðurkenningu.