Tilraun með kyngreint sæði lokið

Tilrauninni með samanburð á venjulegu og kyngreindu sæði sem hefur staðið yfir frá því í janúar er nú formlega lokið. VIð tekur uppgjör sem lýkur ekki endanlega fyrr en 56 dögum eftir síðustu sæðingu með sæði úr tilrauninni. Á næstu dögum ættu þó að koma fram nokkuð sterkar vísbendingar um hver munurinn er milli þessara teggja sæðistegunda. Enn er eitthvað eftir af því sæði sem var tekið og ætlað í tilraunina. Þetta sæði stendur mönnum nú til boða þannig að nú er hægt að óska eftir kyngreindu sæði úr þessum nautum meðan að birgðir endast.

Það upplýsist jafnframt hér með að kyngreinda sæðið er með merkingunni 8 en venjulega sæðið er merkt með 7.