BLUP kynbótamat fyrir frjósemi uppfært

Búið er að uppfæra kynbótamat fyrir frjósemi hjá sauðfé, en gögn frá vorinu 2021 eru með í útreikning. Uppfært mat er nú aðgengilegt inná skýrsluhaldsgrunninum Fjárvís.

Tekinn var saman listi yfir meðalfrjósemi dætra sæðishrúta vorið 2021 sem eiga dætur á fyrsta til fjórða vetri, þ.e. ær fæddar 2016-2019. Ekki voru reiknuð meðaltöl fyrir hópa með fáar dætur. Jafnframt er í skjalinu uppfært kynbótamat sem tekur þá mið af nýjustu upplýsingum um dætur viðkomandi hrúts.

Af hrútum á sæðingastöð þá hækkar kynbótamat fyrir frjósemi mest hjá Mínus 16-827 eða 5 stig. Hjá Viðari 17-844, Heimaklett 16-826 og Vidda 16-820 hækkar matið um 4 stig. Á hinum endanum lækkar kynbótamatið mest hjá Klett 16-851 eða 10 stig. Hjá bæði Garp 16-838 og Snar 18-846 lækkar kynbótamatið um 6 stig og hjá Lurk 19-858, Bikar 17-852 og Glóinn 18-845 lækkar matið um 5 stig.

Sjá nánar:
Frjósemi dætrahópa sæðishrúta vorið 2021 - dætur fæddar 2017-2020