Börkur og Fálki verðlaunahrútar sæðingastöðvanna árið 2020

Á myndinni eru frá vinstri: Guðbrandur Sverrisson, Lilja Jóhannsdóttir, Gunnar Þorgeirsson og Anton …
Á myndinni eru frá vinstri: Guðbrandur Sverrisson, Lilja Jóhannsdóttir, Gunnar Þorgeirsson og Anton Torfi Bergsson.
(Myndina tók: Ingveldur H. Ingibergsdóttir)

Á undanförnum árum hafa sæðingastöðvarnar verðlaunað ræktendur þeirra stöðvahrúta sem skarað hafa hvað mest fram úr sem kynbótagripir. Má því segja að þessar viðurkenningar séu æðstu verðlaun sem veitt eru hér á landi vegna sauðfjárkynbóta. Sauðfjárræktarráðunautar RML hafa árlega útnefnt hrútana, samkvæmt fyrirliggjandi reglum þar um. Þar sem samkomuhald fór mikið úr skorðum á liðnum vetri varð aldrei af því að þessi afhending færi fram. Einn blíðviðrisdag nú í haust var verðlaunahöfunum hóað saman á skrifstofu Búnaðarsamtaka Vesturlands og hrútastytturnar glæsilegu afhentar. Hér verður þessum verðlaunaveitingum gerð skil.

Besti lambafaðirinn 2020
Það er Fálki 17-821 frá Bassastöðum sem er besti lambafaðirinn að þessu sinni en valið byggir á gögnum frá haustinu 2020. Bassastaðabúið er landsþekkt fyrir þá fyrirmyndar sauðfjárrækt sem þar var stunduð. En þannig hittist á, að haustið sem Fálki skilar betri lömbum en aðrir stöðvahrútar, lauk búskaparsögu þeirra Guðbrands Sverrissonar og Lilju Jóhannsdóttur á Bassastöðum. Því er óhætt að segja að þeirra sauðfjárrækt ljúki með stæl.

Við val á besta lambaföðurnum er m.a. horft til niðurstaðana úr lambhrútaskoðunum, fallþungaeinkunnar sláturlamba og til stöðu hrútsins í BLUP kynbótama fyrir gerð, fitu, frjósemi og mjólkurlagni með aðal áherslu á skrokkgæðaeiginleikana.

Fálki hefur hlotið eftirfandi umsögn ráðunauta:
Fálki er sonur Þoku-Smyrils 16-302 frá Bassastöðum en í ættartré hans má sjá Kropp 10-890 frá Bæ og Heydal 09-929 frá Ragnari á Heydalsá í þriðja lið. Heydalur 09-929 er þar raunar í þriðja lið bæði föður- og móðurmegin hjá Þoku-Smyrli. Móðurfaðir Fálka, Stapi 14-108 var frá Melum 1 í Árneshreppi. Baugur 10-889 frá Efstu-Grund er móðurmóðurfaðir Fálka og í móðurættinni má einnig finna Heydal 09-929 í fjórða lið svo hann á talsvert í Fálka. Af þessu má sjá að Fálki er einstaklingur sem rekur uppruna sinn í landsþekkta ræktun á kollóttu fé í allar ættir.

Fálki var valinn á sæðingastöð á grunni afkvæmarannsóknar á Melum 1 í Árneshreppi haustið 2019. Haustið 2020 voru stigaðir 112 synir hans vítt og breytt um landið. Þessi fyrsti hópur sona hans úr sæðingum var stórglæsilegur og fengu þeir að meðaltali hæstu heildareinkunn allra sona stöðvahrútanna haustið 2020 eða 86,2 stig. Dætur Fálka voru jafnframt einn glæsilegasti gimbrahópurinn.

Afkvæmi Fálka eru yfirleitt þroskamikil, með þykkan, vel lagaðan bakvöðva, mjög jafnvaxin og með einstaklega holdfylltan afturpart. Fálki er sjálfur með mjög góða ull og skilar þeim eiginleika vel til afkvæma sinna. Hann skilaði frábæru holdfyllingarmati hjá sláturlömbum og stóð þar efstur meðal allra stöðvahrútanna í haust. Kynbótamat hans fyrir þann eiginleika stendur nú í 126 stigum og trónir hann á toppnum fyrir þann eiginleika af núlifandi stöðvahrútum sem hlotið hafa reynslu í gegnum sæðingar.

Fálki gefur úrvals gerð, góðan þroska og góða ull. Hann hlýtur nafnbótina „besti lambafaðirinn“ fyrir árið 2020.

Mesti kynbótahrútur stöðvanna 2021
Verðlaun fyrir mesta kynbótahrútinn voru veitt bændunum á Efri-Fitjum í Fitjárdal í VesturHúnavatnssýslu fyrir hrútinn Börk 13-952. Á Efri-Fitjum stunda þau búskap af myndarskap Gunnar Þorgeirsson, Gréta Brimrún Karlsdóttir, Jóhannesi Geir Gunnarsson og Stella Dröfn Bjarnadóttir.

Þeir hrútar sem koma til álita í þessu vali þurfa að eiga orðið upplýsingar um dætur tilkomnar í gegnum sæðingar sem hafa a.m.k. tveggja ára reynslu að baki. Síðan er horft til þess annars vegar hvernig hrúturinn hefur reynst sem lamabfaðir og hins vegar hvernig dætur þeirra reynast fyrir mjólkurlagni og frjósemi.

Í umsögn ráðunauta segir:
Börkur kemur frá hinu öfluga fjárræktarbúi Efri-Fitjum í Fitjárdal í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann er sonur Birkis 10-893 frá Bjarnastöðum og dóttursonur Þráðar 06-996 frá Hesti.

Börkur á ákaflega farsælan og glæsilegan feril að baki sem kynbótahrútur. Hann var valinn á sæðingastöð haustið 2015 eftir að hafa staðið efstur í afkvæmarannsókn fyrir úrvalshrúta í Miðfjarðarhólfi. Á sæðingastöðvunum lifði hann í tvo vetur. Bæði árin naut hann mikilla vinsælda meðal ræktenda en veturinn 2016 til 2017 var hann mest notaði hrútur stöðvanna. Þeir kostir sem einkenna afkvæmi Barkar eru góður þroski, bollengd og mikil holdfylling samhliða hóflegri fitu. Var hann valinn besti lambafaðir sæðingasöðvanna árið 2018. Margir synir hans hafa vakið athygli sem álitlegir kynbótagripir og veturinn 2020 til 2021 voru fjórir afkomendur hans á stöðvunum.

Nú er komin víðtæk reynsla á Börk sem ærföður, en til uppgjörs vegna afurðaársins 2020 komu 714 dætur hans. Þær eru að vonum vel yfir meðallagi frjósamar og búa yfir afbragðs mjólkurlagni. Val Barkar byggir öðru fremur á því hve jafnvígur hann er sem kynbótahrútur. Í dag stendur BLUP kynbótamat hans í 114 stigum fyrir gerð og 110 stigum fyrir mjólkurlagni en þar liggja hans höfuð kostir.

Börkur er frábær alhliða kynbótahrútur. Lambafaðir í fremstu röð og úrvals ærfaðir. Börkur hlýtur hér með nafnbótina „mesti kynbótahrútur sæðingastöðvanna 2021“ og verður þar með fyrstur hrúta til að hljóta báða heiðurstitla sæðingastöðvanna.

Að lokum er ræktendum óskað til hamingju með verðlaunin og góðan árangur í sauðfjárrækt. Þeim Guðbrandi og Lilju er jafnframt þakkað þeirra framlag til sameiginlegs ræktunarstarfs í gegnum tíðina.

 

/okg