"Fundið fé"

Mynd: HES
Mynd: HES

Nýlega lauk verkefni sem RML hefur unnið að um möguleika til skilvirkari framleiðslu í sauðfjárrækt og þar með bættri nýtingu aðfanga.  Settar voru upp þrjár mismunandi sviðsmyndir út frá þeirri tiltæku þekkingu sem til staðar er um lífeðlisfræðilega þætti íslenska fjárkynsins. Sviðsmyndirnar voru síðan greindar út frá ytra og innra umhverfi greinarinnar. Að lokum var gerð hagkvæmnigreining út frá þeim upplýsingum sem aflað var.

Verkefnið fékk fjárhagslegan stuðning frá Matvælasjóði á sínum tíma. Einnig var leitað til bænda sem hafa reynslu af nýbreytni í framleiðslu sauðfjárafurða. Auk þess veitti  dr. Ólafur R. Dýrmundsson mikilvæga faglega ráðgjöf.  Öllum þessum aðilum er þakkað þeirra framlag til verkefnisins.

Sjá nánar: 
Fundið fé - skýrsla um fjölbreyttari framleiðsluaðferðir í sauðfjárrækt 

/gj