Gæti betri frjósemi ánna bætt afkomuna á þínu búi?

Hefur þú áhuga á samstarfi?

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur hug á að setja í gang verkefni næsta haust sem lítur að því að efla fóðrunarleiðbeiningar í sauðfjárrækt með áherslu á frjósemi. Megin áherslan í þessu verkefni verður lögð á fóðrunartímabilið frá hausti og fram yfir fengitíð. Verkefnið felur í sér ráðgjöf til þátttakenda og gagnaöflun sem nýtt verður við þróun fóðurleiðbeininga. Túlkun og hagnýting á niðurstöðum verkefnisins verður unnin í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Ávinningur búsins
Unnin er fóðuráætlun fyrir búið út frá niðurstöðum heyefnagreininga. Fylgst verður með framvindu fóðrunar frá hausti og fram yfir fengitíð m.a. út frá þungabreytingum ánna og breytingum á holdafari þeirra. Þegar frjósemi ánna liggur fyrir eftir fósturtalningar næsta vetur verður unnin niðurstöðuskýrsla fyrir búið út frá þeim gögnum sem safnað hefur verið og jafnframt gerð tillaga að úrbótum. Þátttaka í verkefninu ætti að vera áhugaverður kostur fyrir alla þá sem hafa áhuga á fóðrun sauðfjár og vilja ná betri árangri í sínum búrekstri.

Skilyrði fyrir þátttöku og kostnaður
Kostnaður búsins liggur í greiningum á heysýnum en RML leggur fram vinnu við heysýnatöku, gerð fóðuráætlunar, holdastigun og skýrslugerð. Öll bú sem hafa 150 ær eða fleiri geta sótt um þátttöku í verkefninu. Hámarksfjöldi verður 21 bú. Ef velja þarf úr þeim hópi sem sækir um verður m.a. horft til þess að ná inn búum með breytilega frjósemi, horft verður til staðsetningar búanna og að lágmarks aðstaða sé fyrir hendi til að vigta og holdastiga.

Að taka þátt
Hægt er að fá nánari upplýsingar um verkefnið hjá Eyþóri Einarssyni (ee@rml.is / 862-6627/516-5014) og Árni B. Bragasyni (ab@rml.is / 895-1372/516-500 sem jafnframt taka á móti skráningum. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 10. júní n.k.

ee/okg