Hrútakosturinn kynntur á netinu

Þar sem ekki hefur verið hægt að halda hrútafundi með hefðbundnum hætti og fylgja þannig eftir útgáfu hrútaskrár þá er nú í boði kynning á netinu.  Hrútarnir eru kynntir líkt og tíðkast hefur á hrútafundum og gæðum þeirra lýst af ráðunautum RML.  Upptakan býður upp á það að hægt sé að hoppa með einföldum hætti á milli hrúta eða velja úr lista þá hrúta sem menn hafa mestan áhuga á að kynna sér.  
Hrútaskráin er komin úr prentun.  Henni verður síðan dreift með mismunandi hætti eftir búnaðarsambandssvæðum.

Smellið á hlekkinn fyrir kynninguna: 

Hrútakostur Vesturland  

Hrútakostur Suðurland

 

hh