Hrútaskrá 2019-2020 er nú aðgengileg á vefnum

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna fyrir 2019-20 er komin á vefinn. Skráin er á hefðbundnu pdf-formi og hægt er nálgast hana undir "Kynbótastarf -> Sauðfjárrækt -> Hrútaskrá" eða með því að nota hlekkinn hér neðar.

Skráin mun án efa ylja áhugamönnum um sauðfjárrækt um hjartarætur og við vonum að sauðfjárræktendur og aðrir áhugamenn um sauðfjárrækt njóti lesningarinnar þar til prentaða útgáfan kemur út í næstu viku.

Skráin er 52 síður að stærð, litprentuð í A4-broti og inniheldur upplýsingar um 44 hrúta sem notaðir verða til sæðinga í vetur. Hrútakosturinn er að venju gríðarlega öflugur, blanda af reynsluboltum sæðingastöðvanna og yngri kappa sem hafa nú hafið sinn fyrsta vetur á sæðingastöðvunum. Ritstjóri skráarinnar er Guðmundur Jóhannesson en efni skráarinnar er að mestu tekið saman og skrifað af Árna B. Bragasyni, Eyjólfi I. Bjarnasyni, Eyþóri Einarssyni og Lárusi G. Birgissyni. Flestar ljósmyndir í skránni eru teknar af Höllu Eygló Sveinsdóttur en auk hennar tók Torfi Bergsson myndir af hrútum. Rósa Björk Jónsdóttir sá um uppsetningu og umbrot og prentun er í höndum Fjölritunar- og útgáfuþjónustunnar í Borgarnesi. Hér með er þökkum til þessara aðila og fjölmargra annarra er lögðu hönd á plóg komið á framfæri en að baki liggur mikil vinna sem vinna þarf á skömmum tíma.

Njótið vel!

Sjá nánar: 

Hrútaskrá 2019-2020 

/gj