Hrútaskrá 2023-24 komin á vefinn

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna veturinn 2023-2024 er komin hér á vefinn en prentaða útgáfan er væntanleg í lok vikunnar/byrjun þeirrar næstu. Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast þann 1. desember nk. og standa til 20. desember nk. Af þessum 48 hrútum eru 27 hyrndir, 16 kollóttir, 2 feldfjárhrútar og loks 3 forystuhrútar. Í hópi þessara hrúta er að finna 31 hrút sem eru að hefja sinn fyrsta vetur á stöð en vegna breyttra áherslna m.t.t. til riðuarfgerða er endurnýjun meiri en áður. Hér ættu allir sauðfjárræktendur að geta fundið hrút til notkunar sem fellur að þeirra áhuga og kröfum.

Margir hafa komið að gerð hrútaskráarinnar. Lýsingar og umsagnir hrúta hafa skrifað þeir Árni Brynjar Bragason, Fanney Ólöf Lárusdóttir og Eyþór Einarsson. Vinnsla gagna hefur að mestu leyti verið í höndum Þórdísar Þórarinsdóttur. Sigurður Kristjánsson sá um prófarkalestur ásamt höfundum lýsinga og Rósa Björk Jónsdóttir um umbrot. Myndir í skránni eru eftir Höllu Eyglóu Sveinsdóttur og Anton Torfa Bergsson. Greinar í skránni eru eftir þau Eyþór Einarsson, Jón Viðar Jónmundsson og Þórdísi Þórarinsdóttur. Þorsteinn Ólafsson samdi texta um sauðfjársæðingar og beiðsli. Umsjón með prentun hefur Olgeir Helgi Ragnarsson. Ritstjóri er Guðmundur Jóhannesson. Öllum þessum aðilum sem og auglýsendum er þakkað fyrir þeirra framlag.

Sjá nánar:

Hrútaskrá 2023-2024