Hrútaskráin 2022-23 er komin á vefinn

Forsíða Hrútaskráarinnar 2022-23. Mynd: Halla Eygló Sveinsdóttir.
Forsíða Hrútaskráarinnar 2022-23. Mynd: Halla Eygló Sveinsdóttir.

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna fyrir 2022-23 er komin á vefinn. Skráin er á hefðbundnu pdf-formi og hægt er nálgast hana undir "Kynbótastarf -> Sauðfjárrækt -> Hrútaskrá" eða með því að nota hlekkinn hér neðar.

Skráin mun án efa ylja áhugamönnum um sauðfjárrækt um hjartarætur og við vonum að sauðfjárræktendur og aðrir áhugamenn um sauðfjárrækt njóti lesningarinnar þar til prentaða útgáfan kemur út í næstu viku og verður m.a. dreift á hinum svokölluðu hrútafundum.

Skráin er 56 síður að stærð, litprentuð í A4-broti og inniheldur upplýsingar um 47 hrúta sem notaðir verða til sæðinga í vetur. Hrútakosturinn er að venju gríðarlega öflugur, blanda af reynsluboltum sæðingastöðvanna og yngri kappa sem hafa nú hafið sinn fyrsta vetur á sæðingastöðvunum. Þá eru aðrir valkostir í boði, svo sem ferhyrndur hrútur og feld- og forystufjárhrútar. Ritstjóri skráarinnar er Guðmundur Jóhannesson en efni skráarinnar er að mestu tekið saman og skrifað af Árna B. Bragasyni, Eyþóri Einarssyni og Fanneyju Ólöfu Lárusdóttur. Flestar ljósmyndir í skránni eru teknar af Höllu Eygló Sveinsdóttur en auk hennar tóku Eyþór Einarsson og Torfi Bergsson myndir af hrútum. Rósa Björk Jónsdóttir sá um uppsetningu og umbrot og prentun er í höndum Fjölritunar- og útgáfuþjónustunnar í Borgarnesi. Hér með er þökkum til þessara aðila og fjölmargra annarra er lögðu hönd á plóg komið á framfæri en að baki liggur mikil vinna sem sinna þarf á stuttum tíma. Þá er auglýsendum þakkað sérstaklega þeirra framlag sem gerir þessa útgáfu mögulega í því formi sem hún er.

Njótið vel!

Sjá nánar:

Hrútaskrá