Kynbótamat fyrir mjólkurlagni uppfært

Tónn 18-855
Tónn 18-855

Kynbótamat fyrir mjólkurlagi hefur verið uppfært en tekin voru út gögn í gær þegar drjúgur hluti gagna hafði skilað sér þar sem skiladagur skýrsluhaldins var 12. desember sl. Breytingarnar verða aðgengilegar og birtar í Fjárvís seinna í dag.

Af þeim hrútum sem eru í hrútaskrá 2022-2023 eru helstu breytingar frá keyrslunni í lok nóvember þegar 20% gagna hafði skilað sér að Tónn 18-855 hækkar um 8 stig og stendur núna í 104 stigum. Þeir hrútar sem lækka um 3 stig eða meira frá síðustu keyrslu eru: Sammi 16-841, Þokki 17-853, Svartur 17-873, Jötunn 18-863, Fróði 18-880, Kostur 19-849, Kraftur 19-883, Galli 20-875, Hnaus 20-890 og Fannar 20-894.

Kynbótamat fyrir mjólkurlagni verður aftur uppfært á nýju ári, þegar meginþorri uppgjörsgagna fyrir árið 2022 hefur skilað sér frá bændum.
Í meðfylgjandi töflu er uppfært mat á hrútum sem verða á sæðingastöð í vetur ásamt öryggisstuðli og breytingu. Athugið að lambhrútum á sæðingastöð er sleppt.

Gripur Mjólkurlagni Breyting Öryggi mats (%)
16-824 Breki 108 -2 99
16-841 Sammi 104 -3 97
16-868 Hvísli 123 1 93
17-842 Börkur 96 4 98
17-843 Satúrnus 99 3 94
17-852 Bikar 113 0 94
17-853 Þokki 117 -4 95
17-870 Dalur 107 -1 79
17-872 Suddi 95 -1 94
17-873 Svartur 104 -3 86
18-834 Rammi 107 -1 99
18-854 Svörður 112 -1 93
18-855 Tónn 104 8 97
18-863 Jötunn 93 -3 83
18-880 Fróði 112 -3 86
18-881 Brúsi 85 -1 75
18-882 Angi 118 0 83
19-848 Glitnir 101 1 99
19-849 Kostur 89 -4 98
19-864 Dolli 102 3 90
19-865 Hamur 105 -1 77
19-874 Hnokki 100 1 79
19-883 Kraftur 107 -3 84
19-884 Askur 105 0 74
19-885 Alli 110 -2 89
19-886 Baldur 107 1 76
19-887 Glæsir 106 0 94
19-888 Móri 107 1 93
19-889 Kústur 106 -2 70
20-875 Galli 102 -3 70
20-876 Gimli 97 -1 67
20-877 Grettir 101 -2 82
20-878 Kurdo 97 -1 81
20-890 Hnaus 109 -3 73
20-891 Jaður 102 2 68
20-892 Austri 100 -2 66
20-893 Kalli 110 3 69
20-894 Fannar 99 -3 61
20-895 Frakki 69 -2 63
21-896 Þór 102 -1 63
21-897 Sævar 99 -2 57
21-898 Strokkur 108 1 53
21-899 Gimsteinn 105 0 55