Móttaka sæðispantana hafin á Austurlandi

Opnað hefur verið fyrir móttöku pantana á hrútasæði fyrir starfssvæði Búnaðarsambands Austurlands hér á heimasíðunni. Smella þarf á hnapp hér hægra megin á forsíðunni til að komast inn í pöntunarformið. Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi kl. 12:00 daginn fyrir sæðingu.

Hrútaskrá verður afhent á kynningarfundi um hrútakost stöðvanna á morgun í Valaskjálf kl. 16, í kjölfar hans verða hrútaskrár sendar út í pósti. Nánari upplýsingar um sauðfjársæðingar á Austurlandi veitir Guðfinna Harpa Árnadóttir síma 516-5017/863-3648 en hún sinnir þessu verkefni í umboði BsA.

ghá/okg