Prentun á vorbókum 2023

Ágætu skýrsluhaldarar í sauðfjárrækt.  Eins og fram hefur komið stendur til að taka vor- og haustbækur í allsherjar yfirhalningu með það að markmiði að birta ýmsar nýjar upplýsingar sem eru nú til staðar um gripina en koma ekki fram í bókunum og koma til  móts við hugmyndir um frekari gagnasöfnun, til dæmis til að leggja mat á fleiri eiginleika í sauðfjárrækt.  Markmiðið var að klára þessa vinnu nú fyrir vorið. Úttekt á stöðunni á skýrsluhaldskerfinu Fjárvís hefur hins vegar leitt í ljós að nauðsynlegt er að byrja á að uppfæra Fjárvís yfir í nýjustu útgáfu af því forritunarmáli sem kerfið er skrifað í, þannig að hægt sé að framkvæma þær breytingar sem við viljum sjá á kerfinu og þá þróun sem notendur eru að kalla eftir.  Vorbækur verða því prentaðar í óbreyttri mynd núna fyrir utan að hafi menn skráð fang og/eða fósturtalningu munu þær upplýsingar prentast í bækurnar núna. 

Stefnt er að því að setja bækurnar í prentun í næstu viku fyrir þá sem ekki eru nú þegar búnir að fá bók.   Við hvetjum þá sem ekki eru búnir að skrá fang og/eða fósturtalningu að ljúka við þá skráningu sem fyrst þannig að þær upplýsingar prentist í bækurnar.   

Nánar verður fjallað um Fjárvís, niðurstöður notendakönnunar og þau verkefni sem eru framundan í Bændablaðinu þann 4. apríl. 

/okg