Riðuarfgerðargreiningar - Verðbreyting hjá Matís

Í haust voru í boði riðuarfgerðargreiningar  (PrP greiningar) hjá Matís á tilboðsverði (3.000 kr. + vsk pr. greining) en greiningarnar voru niðurgreiddar af Þróunarsjóði sauðfjáræktarinnar.  Verkefni þetta var sett upp til þess að tryggja það að hægt væri að anna greiningum sýna hratt og vel í haust samhliða ásetningsvalinu.  Tilboðsverðið hefur gilt þar til nú en frá og með deginum í dag 18. janúar 2023, hefur þessu verkefni verið lokað. 

Nánari útfærsla á þjónustu Matís og verð á PrP greiningum fyrir komandi misseri verður kynnt von bráðar.

/hh