Sauðfjárræktarráðunautar RML hafa undanfarið unnið að gerð nokkurra ráðgjafarpakka í sauðfjárrækt. Fyrsti pakkinn sem er þjónustupakki hefur nú litið dagsins ljós, en markmið hans er að veita bændum grunnþjónustu á hagstæðu verði sem bæði felur í sér faglegar leiðbeiningar og aðstoð eða vöktun við ýmislegt sem bændur þurfa að standa skil á. Bóndinn getur valið sér einn tengilið úr hópi sauðfjárræktar- og þjónusturáðunauta RML. Þjónustupakkinn inniheldur meðal annars eftirfarandi:
- Áburðaráætlun og uppfærslu túnkorta.
- Aðstoð við val á lömbum til skoðunar.
- Lambaskoðun og uppgjör afkvæmarannsóknar.
- Aðstoð við frágang og skil fjárbóka, gæðahandbókar, búfjárskýrslu og pöntun ásetningsmerkja.
- Aðstoð við umsóknir eins og t.d. umsóknir um jarðræktarstyrk og afkvæmarannsóknarstyrk.
Alls tilheyra 9 vinnutímar þessum pakka sem kostar 30.000 kr.
Nánari upplýsingar gefur Lárus G. Birgisson sauðfjárræktarráðunautur RML í síma 516 5033 eða í gegnum netfangið lgb@rml.is.
Sjá nánar:
Almenn ráðgjöf - þjónustupakki
lgb/okg