Ætlar þú að kaupa hrút í haust?

Minnt er á að samkvæmt upplýsingum á vef MAST þarf að vera búið að sækja um leyfi til að kaupa líflömb fyrir 1. september.

Um er að ræða tvennskonar leyfi. Annars vegar hefðbundið kaupaleyfi lamba úr líflambasöluhólfum þar sem ekki þarf að tilgreina við hvaða bú er verslað. Hinsvegar er hægt að sækja um sérstakt leyfi til flutnings á lömbum með verndandi eða mögulega verndandi arfgerðir af öðrum svæðum en líflambasölusvæðum og þá gert ráð fyrir að bú séu tilgreind. Sótt er um leyfi í gegnum heimasíðu MAST.

Á heimasíðu MAST er einnig að finna „verklagsreglur fyrir flutning á lömbum með verndandi og mögulega vernandi arfgerðir með tilliti til riðu“, en mismunandi er hvaða kröfur eru gerðar til arfgerðanna sem leyfilegt er að höndla með eftir því hver sjúkdómastaða búanna er sem flytja á fé á milli. Almennt má segja að hægt sé að sækja um leyfi til flutnings á lömbum með verndandi eða mögulega verndandi arfgerðir innan svæða í sömu sjúkdómastöðu eða frá svæði í betri stöðu til svæða í verri stöðu m.t.t. áhættu gegn riðuveiki. Lista yfir bú með söluleyfi er hægt að nálgast á heimasíðu MAST, en frestur til að sækja um söluleyfi rann út 1. júlí.

/okg