Afkvæmarannsóknir á hrútum 2025 – framkvæmdar af bændum

Samantekt um styrkhæfar afkvæmarannsóknir á hrútum 2025 sem framkvæmdar voru af bændum liggur nú fyrir og er aðgengileg á heimasíðu RML. Alltaf er hætta á við svona samtektir að villur slæðist inn. Þegar hafa borist tvær ábendingar og verður beðið í nokkra daga með að lagfæra þau atriði ef fleiri villur leynast þarna.

Bændur eru því hvattir til að lesa yfir a.m.k. það sem að þeirra búi snýr og senda athugasemdir á ab@rml.is ef þörf er á. Stefnt er á að gera grein fyrir helstu niðurstöðum í Bændablaðinu á næstunni.

Sjá nánar: 
Niðurstöður 2025

/okg