Afmæliskaffi RML á Hvanneyri föstudaginn 18. ágúst kl. 14-16

RML á 10 ára starfsafmæli á árinu og samhliða spildudeginum sem fram fer á Hvanneyri þann 18. ágúst þá verður afmæliskaffi á skrifstofu RML að Hvanneyrargötu 3 þann dag milli kl. 14.00-16:00.
Okkur langar sérstaklega að bjóða bændum að hitta okkur á starfsstöðinni í kaffi og spjall og ræða um verkefni RML.
Boðið verður upp á köku í tilefni 10 ára afmælisins.

Hlökkum til að sjá ykkur !

Öll velkomin