Alþjóðlegum námskeiðum FEIF lokið

Samræmingarnámskeið fyrir alþjóðlega kynbótadómara og sýningarstjóra voru haldin síðustu helgina í mars. Námskeiðin fóru fram í Kríunesi við Elliðavatn en einnig var farið í hesthús til að skoða og mæla hross. Helgin byrjaði á fimmtudeginum með námskeiði fyrir sýningarstjóra og mælingarfólk þar sem farið var yfir framkvæmd kynbótasýninga, mælingar á hrossum og fleiri atriði. Þá var sameiginleg stund sýningarstjóra og dómara á föstudagseftirmiðdegi þar sem Kristinn Óskarsson dómari fór yfir andlegu hlið starfsins; ákvarðanatöku undir álagi og hvernig starfsfólk sýninganna eigi að nálgast starfið á faglegan hátt. Eftir það tók við samræming dómaranna fram á sunnudag, bæði hvað varðar byggingardóma og dóma á reiðhestskostum. Fyrirlesarar voru Heimir Gunnarsson, Pétur Halldórsson, Sigurður Torfi Sigurðsson og Þorvaldur Kristjánsson. Afar góð mæting var á námskeiðin og kom fólk frá öllum þeim FEIF-löndum þar sem haldnar eru kynbótasýningar. Þessir viðburðir eru afar mikilvægir fyrir starfsfólk sýninganna til að koma saman, stilla saman strengi og undirbúa komandi vertíð í dómum en samræmd vinnubrögð eru lykilatriði við hvert dómkerfi.

/okg