Dagana 24.-26. júní hélt RML þriðja ársfund AGROSUS verkefnisins í Norræna Húsinu í Reykjavík. AGROSUS er evrópskt samstarfsverkefni um vistvænar varnir gegn illgresi en verkefnið nær til tíu landa. Til fundarins mættu samstarfsaðilar víðsvegar að úr Evrópu og fóru yfir þann árangur sem náðst hefur í verkefninu á síðustu þremur árum, ásamt þeim verkefnum sem framundan eru á lokaári þess.
Á fundinum var kynntur árangur tilrauna með vistvænar varnir gegn illgresi sem staðið hafa yfir víðsvegar um Evrópu síðastliðin ár. Farið var yfir rannsóknir og þróun á nýjum illgresiseyðum sem unnir eru úr lífrænum efnasamböndum. Einnig var kynnt þróun á stafrænum lausnum við myndun, greiningu og kortlagningu illgresis.
Á lokadegi fundarins buðu starfsmenn RML fundargestum í skoðunarferð um Suðurland. Gestunum gafst kostur á að kynna sér ræktun og umhverfi á Flúðum og nágrenni. Deginum lauk á Friðheimum þar sem fundargestir fengu fræðslu um ræktun í gróðurhúsum á Íslandi og snæddu kvöldverð.
/okg