Aukasýning miðsumars á Gaddstaðaflötum

Áður auglýst Miðsumarssýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum varð þéttskipuð og fullsetin á síðasta skráningardegi, föstudaginn 14. júlí, en þar verða sýnd u.þ.b. 240 hross.Til að koma til móts við þá sem ekki náðu að skrá hross sín til dóms og mæta eftirspurn fyrir hrossadóma á miðsumri hefur verið ákveðið að stofna til nýrrar kynbótasýningar á Gaddstaðaflötum.
Ef næg þátttaka verður fyrir hendi mun sú sýning hefjast mánudaginn 31. júlí og standa svo langt fram í vikuna sem þurfa þykir; hugsanlega 1-2 dómdagar + yfirlitssýning.

Skráningu hrossa á þessa fyrirhuguðu aukasýningu (Miðsumarssýning II) lýkur fimmtudaginn 20. júlí. 

Við hvetjum alla áhugasama til að skrá hross sín tímanlega  hér í skráningarferli World-Feng. Sjá einnig hnapp á forsíðunni rml.is.

ph/hh