Bændafundir á næstunni

Í næstu og þarnæstu viku munu stjórn og hluti starfsfólks Bændasamtaka Íslands, ásamt framkvæmdastjóra og stjórnarmanni RML fara í ferð um landið og funda með bændum og öðrum sem áhuga hafa á að mæta, en fundirnir verða opnir öllum. Umfjöllunarefni fundanna verður starfsemi samtakanna, málefni sveitanna og komandi tíð. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Fundarstaðir:

Mánudagur 21. ágúst

  • Kl. 11:00 - Hótel B59 í Borgarnesi
  • Kl. 16:00 - Félagsheimilið Hvammstanga
  • Kl. 20:00 - Ljósheimar í Skagafirði

Þriðjudagur 22. ágúst

  • Kl. 12:00 - Hlíðarbær í Eyjafirði
  • Kl. 19:00 - Breiðamýri í Þingeyjarsveit

Miðvikudagur 23. ágúst

  • Kl. 12:00 - Hótel Skúlagarður í Kelduhverfi
  • Kl. 20:00 - Barnaskólinn á Eiðum

Fimmtudagur 24. ágúst

  • Kl. 12:00 - Brunnhóll í Suðursveit
  • Kl. 17:00 - Kirkjubæjarstofa á Kirkjubæjarklaustri

Föstudagur 25.ágúst

  • Kl. 15:00 - Félagsheimilið Hvoll á Hvolsvelli
  • Kl. 20:00 - Hótel Selfoss

Miðvikudagur 30. ágúst 

  • Kl. 12:00 - Edinborgarhúsið á Ísafirði
  • Kl. 17:30 - Félagsheimilið Patreksfirði

/okg