Bændasamtök Íslands auglýsa eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna

Bændasamtök Íslands hafa auglýst eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í sauðfjárrækt og nautgriparækt. Sérstakar reglur gilda um styrkina og eru þær aðgengilegar á vefnum bondi.is. Aðeins er tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Bændasamtaka Íslands í síma 563 0300.

Þróunarverkefni í sauðfjárrækt - Umsóknarfrestur til 1. apríl 2014: Styrkir eru veittir vegna kennslu, rannsókna, leiðbeininga og þróunar í greininni.

Þróunarverkefni í nautgriparækt - Umsóknarfrestur til 10. apríl 2014: Styrkt eru verkefni sem talin eru styrkja íslenska nautgriparækt og teljast til rannsókna eða þróunarverkefna í nautgriparækt.

klk/okg