Betra er að skrá jarðræktarskýrsluhaldið fyrr en seinna

Eins og undanfarin ár þá aðstoða starfsmenn RML bændur við skráningu jarðræktarskýrsluhalds og lagfæringu á túnkortum í Jörð.is. Svigrúm í tíma fyrir skráningar er þó mun minna þetta árið heldur en vant er.

Stjórnvöld hafa gefið það út að greitt verði álag á jarðræktarstyrki og landgreiðslur og að greiðslum verði ráðstafað til bænda sem fyrst. Álagsgreiðslurnar eiga að taka mið af þeim umsóknum sem verða komnar inn 3. október og lítið svigrúm verður þar af leiðandi fyrir RML til að skrá inn gögn sem koma síðustu dagana fyrir umsóknarfrest. RML mun ekki geta skráð nein gögn eftir 3. október.

Mikilvægt er því að bændur komi gögnum til skráningar hjá RML eigi síðar en 20. september svo tryggt verði að skýrsluhaldið þeirra verði skráð fyrir tilsettan tíma.

Mikilvægt er að hafa í huga að þrátt fyrir að einhver uppskera kunni að vera óskráð, þá kemur það ekki í veg fyrir að hægt sé að skila jarðræktarskýrslu í Jörð.is og sækja um styrkinn í Afurð.

Eins og í fyrra þá þarf að skrá upplýsingar um ræktun og uppskeru ásamt notkun tilbúins- og búfjáráburðar.

/okg