Bilun í skráningarkerfi fyrir kynbótasýningar - unnið að viðgerð

Búið er að loka fyrir allar skráningar á kynbótasýningar vegna bilunar í pöntunarkerfi. Unnið er að viðgerð.  Kerfinu hefur verið lokað og við getum í fyrsta lagi opnað aftur mánudaginn 9. maí n.k. Við biðjum fólk að sýna biðlund og RML biðst innilegrar afsökunar á þessum tæknilegu vandamálum. Einnig er verið að skoða hvort og þá hvernig hægt sé að koma til móts við mikla aðsókn á vissar sýningar. Frekari upplýsinga er að vænta á morgun, föstudag 6. maí.

/okg