Breytingar á heildareinkunn kynbótamats í sauðfjárrækt

Á síðasta ári birtust niðurstöður verkefnisins „Ræktun fyrir hagkvæmri lambakjötsframleiðslu“ sem unnið var af Landbúnaðarháskóla Íslands í samstarfi við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Í sumar hefur verið unnið að því innleiða breytingar á kynbótamati í sauðfjárrækt í samræmi við ályktanir verkefnisins.

Þar má fyrst nefna að vægi eiginleika í heildareinkunn kynbótamats hefur verið breytt (eldri vægi í sviga). Samkvæmt niðurstöðum verkefnisins skilar ný samsetning heildareinkunnar mestum hagrænum ávinningi í kynbótastarfinu:

  • Gerð 31% (25%)
  • Fita, að kjörgildi 3% (5% línuleg)
  • Fallþungi bein áhrif 21% (20%)
  • Fallþungi mæðra áhrif 15% (20%)
  • Frjósemi 30% (30%)

Önnur breyting er að í nýrri heildareinkunn er ekki hin hefðbundna línulega einkunn fyrir fitu þar sem gripir sem gefa magurt fá hærri einkunnur og gripir sem gefa feitt fá lægri einkunnir. Þess í stað er komin inn ný einkunn þar sem einkunn fyrir fitu er reiknuð út frá kjörgildi en kjörgildið samkvæmt áðurnefndu verkefni er 6,55. Gripir sem fá kynbótamat næst kjörgildinu fá því hæstu einkunnirnar og frávik frá kjörgildi (í báðar áttir) leiða til lækkunar. Einkunn fyrir kjörgildi fitu sést ekki í Fjárvís eins og er. Á skýringarmyndinni hér fyrir neðan má hinsvegar sjá að gripir sem fá einkunnir u.þ.b. á bilinu 95-105 á línulegum skala fyrir fitu fá hæstu einkunnirnar fyrir kjörgildi fitu.

Hluti verkefnisins var einnig að endurreikna erfðastuðla sem notaðir eru í kynbótamati fyrir þungaeiginleika. Niðurstöður sýndu að arfgengi beinna áhrifa á fallþunga og lífþunga að hausti, þ.e. erfðaeiginleikar lambsins sjálfs til að verða vænt, er um 0,15-0,16, en arfgengi mæðraáhrifa, þ.e. eiginleiki áa til að eiga væn lömb, er um 0,12-0,13. Erfðafylgni á milli beinna áhrifa og mæðra áhrifa er aðeins neikvæð. Búið er að innleiða nýja erfðastuðla í kynbótamatið.

Einkunn bónda í Fjárvís

Að lokum er gott að minna á að í kynbótamatsyfirlitinu í Fjárvís birtast tvær samsettar einkunnir. Fyrrnefnd heildareinkunn kynbótastarfsins, en einnig má þar finna einkunn bónda. Ef farið er í Notandi og Stillingar geta bændur stillt þessa einkunn eftir sínu höfði fyrir sína hjörð (sjá mynd).

Sjá nánar:
Ræktun fyrir hagkvæmri lambakjötsframleiðslu

/hh