Breytingar á verðskrá RML

Þann 9. apríl 2026 tekur gildi ný verðskrá fyrir þjónustu RML. Ný verðskrá hefur verið samþykkt af stjórn RML.

Verðskráin er tvíþætt í þeim skilningi að ákveðnum hluta verðskrár getur stjórn og stjórnendur breytt en annar hluti er háður samþykki atvinnuvegaráðuneytisins. Sá hluti er þarfnast samþykkir ráðuneytisins var samþykktur þann 27. febrúar.

Þær verðskrár sem háðar eru samþykki atvinnuvegaráðuneytis eru lögbundið skýrsluhald, verð á útseldri ráðgjöf til bænda og verð fyrir kynbótasýningar.

Þegar verð eru hækkuð er horft til útkomu einstakra verkefna en að sama skapi reynt að halda verðhækkunum í hófi og þá er yfirleitt miðað við hækkun vísitölu síðasta árs á undan.Verðskrá er að hækka um 3,5% í samræmi við vísitölu.

Þeir sem eru aðilar að Bændasamtökum Íslands fá 50% afslátt af áskriftum af skýrsluhaldsforritum miðað við fullt verð til þeirra sem standa utan og félagsmenn Bí fá einnig afslátt af dkBúbót.

Hægt er að kynna sér verðskrána á heimasíðu RML undir verðskrá.

Sjá nánar:

Verðskrá RML