DNA innlestur 26.05. tekinn út

DNA innlestur 26.05.2026

Svo virðist sem að DNA niðurstöður sauðfjár, sem lesnar voru inn þann 26.05.´26, hafi ekki verið alveg réttar.  Grunur kviknaði þegar kom í ljós að gripir fengu ekki flögg, þar sem niðurstaða arfgerðargreiningar passaði ekki við arfgerðir foreldra. Þeir gripir fengu svart spurningamerki við sig í stað flagga.  Fjöldi þessara niðurstaðna var óvenjuhár í þessum innlestri sem varð til þess að ákveðið var að eyða honum í heild sinni og athuga málið betur.  Unnið er að úrbótum og verður niðurstaðan lesin inn síðar.

/agg