Elise Calesse komin til starfa hjá RML

Elise Calesse er komin til starfa hjá RML. Hún mun starfa sem ráðgjafi á rekstrar- og umhverfissviði. Aðalstarfsstöð hennar verður á Hvanneyri.

Elise hefur háskólamenntun í búvísindum, umhverfis- og vistfræði ásamt mastersnámi í landbúnaðar- og umhverfisfræðum.

Netfang hennar er elise@rml.is og síminn er 516-5026.

Við bjóðum Elise velkomna til starfa hjá RML.

Á starfsstöðinni á Hvanneyri starfa ásamt henni:
Árni B. Bragason ráðunautur á búfjárræktar- og þjónustusviði, Baldur Örn Samúelsson, ráðunautur á rekstrar- og umhverfissviði, Borgar Páll Bragason fagstjóri rekstrar- og umhverfissviðs, Helga Halldórsdóttir verkefnastjóri á fjármála- og tæknisviði, Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri, Oddný K. Guðmundsdóttir á fjármála- og tæknisviði og Sigurður Guðmundsson verkefnastjóri á fjármála- og tæknisviði.