Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir starfsfólki í tímabundið verkefni við móttöku pantana, dreifingu sýnatökubúnaðar og skráningu á riðuarfgerðarsýnum úr sauðfé.
Verkefnið felur í sér:
- Móttaka pantana á sýnatökubúnaði og dreifing til bænda
- Mótttaka á sýnum
- Skanna sýni sem berast
- Samskipti við bændur og greiningaraðila
- Samskipti við starfsfólk RML
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Tölvufærni
- Góð þjónustulund og samskiptahæfni
- Gott skipulag
Starfið er tímabundið frá 1. apríl 2026 til 30. júní 2026. Hægt er að vinna starfið í verktöku ef þess er óskað. Starfið miðast við aðstöðu á Sauðárkróki, Blönduósi eða Hvanneyri. Um er að ræða eitt starf á Sauðárkróki eða Blönduósi og annað starf á Hvanneyri.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsstöðvar eru dreifðar um landið. Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is, einnig er á heimasíðunni hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars. Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri, klk@rml.is og Friðrik Már Sigurðsson fagstjóri, fridrik@rml.is.
Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML
/okg