Nú styttist óðum í fyrstu kynbótasýningar vorsins. Tímabært er að yfirfara og huga að þeim reglum sem gilda um aðgengi hrossa að dómi. Í vegvísi við kynbótadóma 2026 segir:
- Hross sem koma til kynbótadóms skulu vera vel undirbúin, hraust og ósár, vel fóðruð og hirt og að minnsta kosti 3 vetra miðað við almanaksárið. Hross sem sýnd eru í reið skulu hafa ná 4 vetra aldri miðað við almanaksárið.
- Öll hross sem koma til kynbótadóms skulu vera grunnskráð í WorldFeng og einstaklingsmerkt með örmerki.
- Úr öllum hryssum og geldingum sem mæta til kynbótadóms þarf að vera búið að taka DNA-sýni og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
- Úr öllum stóðhestum, fimm vetra eða eldri, þarf að hafa verið tekið blóðsýni við komu til dóms.
- Allir stóðhestar sem koma til kynbótadóms skulu vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra.
- Röntgenmynda skal hækilliði allra stóðhesta sem náð hafa fimm vetra aldri og koma til dóms á kynbótasýningum. Röntgenmyndirnar er heimilt að taka af hestunum hvenær sem er á því ári sem fimm vetra aldri verður náð. Stóðhestar hljóta ekki dóm nema myndataka hafi farið fram og niðurstöður liggi fyrir í WorldFeng.
- Öll hross sem fædd eru árið 2024 eða seinna skulu vera DNA-greind með sönnun á ætterni í F- og M-legg; þ.e. fyrirliggjandi sýni úr F- og M- allra hrossa sem koma til kynbótadóms frá og með sýningarárinu 2028 þurfa að vera til staðar.
Síðasti liðurinn, um fulla ætternisstaðfestingu hryssa/geldinga, virkjast fyrst árið 2028 en skynsamlegt er að huga tímanlega að sýnatökum allra ræktunarhrossa á hverju búi.
Hraðsoðin yfirferð IS-sýningarársins 2025 leiðir í ljós að u.þ.b. 95% hryssa/geldinga á vorsýningum höfðu þegar fulla ætternisstaðfestingu, eins og krafist hefur verið af stóðhestum um langt árabil. Sama hlutfall var u.þ.b. 87% á miðsumarssýningum en fór lægst á síðsumarsviðburðum í um 82%.
Það er von í spennandi vori!
/okg