Erfðamengisúrval: Öll tekin sýni farin til greiningar

Undanfarnar vikur hafa starfsmenn RML unnið að DNA-sýnatökum úr íslenska kúastofninum vegna erfðamengisúrvals í nautgriparækt. Í þessu skyni hefur verið farið á samtals 173 bú um allt land auk Nautastöðvarinnar á Hesti. Samtals voru tekin 4.125 vefjasýni úr kúm og 106 vefjasýni úr nautum auk þess sem 63 sæðissýni fóru til greiningar.

Í dag fór svo seinni sýnasendingin til greiningar hjá Eurofins í Danmörku, samtals 2.880 sýni. Von er á niðurstöðum greininga úr þeim innan fárra vikna og munu þær nýtast í doktorsverkefni Egils Gautasonar um þróun erfðamengisúrvals fyrir íslenska kúastofninn.

Við þökkum bændum kærlega fyrir góðar móttökur og aðstoð við söfnun sýnanna en alls staðar mættum við áhuga og samstarfsvilja við verkið.