Fagfundur nautgriparæktarinnar 2026 verður haldinn fimmtudaginn 22. október n.k. í Ásgarði á Hvanneyri og hefst kl. 13:00.
Fundur er haldinn á vegum Fagráðs í nautgriparækt, í samstarfi við Bændasamtök Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Nautastöð BÍ og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Fundurinn er öllum opinn og er einnig streymt á netinu, sjá hlekk hér fyrir neðan dagskrá.
Dagskrá:
13.00 Frá fagráði – Þórarinn Leifsson, formaður Fagráðs í nautgriparækt
13.10 Besta nautið fætt 2019 – afhending viðurkenningar
13.15 Fyrirmyndarbú Nautgripabænda BÍ – afhending viðurkenningar
13.20 Erfðaáhrif á lifun kálfa í íslenskum kúm, Egill Gautason, LbhÍ
13.40 „Bröndótt gefur björg í bú“ – Um liti íslensku kýrinnar – Ágústa Rut Haraldsdóttir, LbhÍ
14.00 Undir yfirborðinu: Hvað hafa ómmælingar holdagripa leitt í ljós? – Ditte Clausen, RML
14.20 Umræður
14.40 Kaffihlé
15.00 Þróun sérmerkinga fyrir íslenskt nautakjöt – Eva Margrét Jónudóttir, Matís
15.20 Kyngreint sæði, árangur og kynhlutfall – Guðmundur Jóhannesson, RML
15.40 Umræður
16.00 Lok fagfundar
Smelltu til að tengjast fundi 