Fagfundur sauðfjárræktarinnar

Hinn árlegi fagfundur sauðfjárræktarinnar sem fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir verður haldinn á Hótel Laugarbakka í Miðfirði laugardaginn 11. apríl og hefst kl. 12:30.

Dagskrá: 

  • Setning - Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, formaður fagráðs í sauðfjárrækt
  • Nokkrar vörður og staksteinar úr kynbótastarfinu - Eyþór Einarsson, RML
  • Innleiðing verndandi arfgerða og þróun skyldleikaræktar - hvernig hefur gengið hingað til? - Jón Hjalti Eiríksson, LBHÍ
  • Skila skýrsluhaldsniðurstöður sér í veskið? - Guðfinna Harpa Árnadóttir, RML
  • Verðlaunaafhendingar
  • Áhrif tímalengdar kjarnfóðurgjafar á vöxt og afurðir lambgimbra - Logi Sigurðsson, Steinahlíð
  • Bergsstaðir á Vatnsnesi - Magnús Örn Valsson, Bergsstöðum
  • Gerðarmat lambaskrokka byggt á lengdarmælingum - Jón Hjalti Eiríksson, LBHÍ
  • Almennar umræður

Fundurinn er öllum opinn og streymt verður frá fundinum.

Sjá nánar:
Slóð á streymi