Fagfundur sauðfjárræktarinnar – verðlaunahafar og upptaka af fundinum

Vel var mætt til fundar á Hótel Laugarbakka sl. laugardag. Fagfundur sauðfjárræktarinnar var þar haldinn fyrir troðfullum sal af fólki. Á fundinum voru flutt nokkur erindi sem góður rómur var gerður að og æðstu verðlaun sauðfjárræktarinnar veitt. Neðst í þessari frétt er hlekkur á upptöku af erindum.

Eftirtalin verðlaun voru veitt á fundinum:

Ræktunarbú ársins
Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir, ábúendur í Baldursheimi 3 tóku á móti Halldórsskyldinum sem nú var veittur í fimmta sinn fyrir sauðfjárræktunarbú ársins. Það voru um 120 bú sem komu til uppröðunar samkvæmt kynbótamati þegar búið var að sía út þá bæi sem stóðust allar kröfur sem gerðar eru til verðlaunabúsins. Meðalkynbótaeinkunn ánna í Baldursheimi er 108,2 stig.

Verðlaun fyrir góðan árangur í ræktun gegn riðu
Í þessum flokki voru veitt verðlaun til þeirra búa sem hafa náð hvað bestum árangri í að rækta upp stofn sem er riðuþolinn. Samkvæmt landsáætlun um útrýmingu riðuveiki eru bú flokkuð með tilliti til áhættu gagnvart riðu og eru markmið um hraða innleiðingar mismunandi milli flokka. Verðlaunin eru því veitt innan þessar flokka. Kröfur eru gerðar um að á búinu séu 100 eða fleiri skýrslufærðar ær og að búið standist viðmið landsáætlunar, en nú getur hver og einn skoðað stöðu þessarar ræktunar fyrri sitt bú inn í Fjárvís undir „Riðumælaborð“. Verðlaunuð eru síðan þau bú sem efst standa samkvæmt kynbótamati fyrir riðumótstöðu. Eftirfarandi bú voru verðlaunuð fyrir góðan árangur:

  • Krithóll, Skagafirði. Björn og Hrund. (Áhættubú). Kynbótamatseinkunn: 118 stig.
  • Ytri-Hóll 1, Skagabyggð. Björn Þormóður og Dagný. (Önnur bú í áhættuhólfi). Kynbótamatseinkunn: 112 stig.
  • Heydalsá, Steingrímsfirði. Guðjón og Nicole. (Bú án hafta). Kynbótamatseinkunn: 114 stig.

Verðlaunahrútar sæðingastöðvanna
Besti lambafaðir sæðingastöðvanna, byggt á árangri haustið 2025, var útnefndur Faldur 23-937 frá Ytri-Skógum.

Fyrir góða alhliða reynslu er árlega verðlaunaður mesti kynbótahrútur stöðvanna. Að þessu sinn var það Askur 19-884 frá Kirkjubæjarklaustir II. Eitt að skilyrðunum fyrir því að hrútar eigi kost á þessum verðlaunum er að kominn sé að minnsta kosti tveggja ára reynsla á dætur þeirra í gegnum sæðingar.

Verðlaun fyrir stöðvahrútanna eru veitt af sæðingastöðvunum en fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir því að verðlauna ræktunarbúið og veita hvatningarverðlaun vegna ræktunar gegn riðu.

Sjá nánar:
Upptaka af fundinum
(Ath: Því miður er ekki í upptökunni að finna útsendingu frá verðlaunaafhendingunni en það er vegna tæknilegra vandamála sem komu upp í þeim hluta dagskrárinnar)

/okg