Fagþing nautgriparæktarinnar 2018

Úranus 10081
Úranus 10081

Fagþing nautgriparæktarinnar 2018 verður haldið í tengslum við aðalfund Landssambands kúabænda föstudaginn 6. apríl n.k. Þingið verður haldið á Hótel Selfossi og hefst kl. 13.00 en aðalfundur LK verður settur kl. 10.00 þann sama dag. Dagskrá aðalfundar LK og fagþingsins má sjá hér fyrir neðan, en bæði aðalfundurinn og fagþingið er að sjálfsögðu opið fyrir alla kúabændur landsins sem og annað áhugafólk um nautgriparækt. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.

Föstudagur 6. apríl. Hótel Selfoss, Eyravegi 2, Selfossi

Kl. 10:00         Fundarsetning, kosning starfsmanna fundarins, kjörbréfa- og uppstillingarnefndar

Kl. 10:15         Skýrsla stjórnar. Arnar Árnason, formaður LK og Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri LK

Kl. 11:00         Ávörp gesta og umræður um skýrslu stjórnar

Kl. 12:00         Léttur hádegisverður

Kl. 13.00         Setning á fagþingi nautgriparæktarinnar, Guðný Helga Björnsdóttir, formaður fagráðs í nautgriparækt

Kl. 13.05         Verðlaun fyrir besta nautið í árgangi 2010 – Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður nautgriparæktar, RML

Kl. 13.15         Frá heimsráðstefnunni um búfjárkynbætur – Baldur Helgi Benjamínsson

Kl. 13.35         Losun gróðurhúsalofttegunda – Stefán Gíslason, Environice

Kl. 14.00         Yfirlit nýlokinna verkefna og í vinnslu – Guðmundur Jóhannesson

Kl. 14.15         Mælidagalíkan fyrir íslenska kúastofninn – Jón Hjalti Eiríksson

Kl. 14.35         Fyrirspurnir og umræður

Kl. 14.50         Kaffihlé

Kl. 15.10         Erfðamengisúrval, staða verkefnisins og næstu skref – Baldur Helgi Benjamínsson

Kl. 15.30         SpermVital – fyrstu tölur um notkun og árangur – Guðmundur Jóhannesson

Kl. 15.50         Hagrænt vægi eiginleika, staða verkefnisins – Kári Gautason

Kl. 16.10         Umræður

Kl. 16.30         Fagþingi slitið

Kl. 16.30         Aðalfundi LK fram haldið á Hótel Selfossi.

Ávarp landbúnaðarráðherra.

Niðurstöður kjörbréfanefndar lagðar fram, almennar umræður, skipan í nefndir, málum skipað til nefnda og nefndastörf.

Kl. 19.00         Kvöldverður í boði styrktaraðila.

 

Laugardagur 7. apríl. Hótel Selfoss, Eyravegi 2, Selfossi

Kl. 8.00           Nefndastörf

Kl. 11.30         Kosning formanns

Kl. 12.00         Hádegisverður

Kl. 13.00         Afgreiðsla mála

Kl. 15.00         Kaffihlé

Kl. 15.20         Afgreiðsla mála/kosningar

Kl. 16.30         Önnur mál

Kl. 17.00         Fundarlok

Kl. 19.00         Árshátíð Landssambands kúabænda á Hótel Selfossi

Fyrirmyndarbúi Landssambands kúabænda 2018 veitt viðurkenning