Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Fjórðungsmót verður haldið á Vesturlandi í ár, nánar tiltekið í Borgarnesi, dagana 3. – 6. júlí. Hross sem eru í eigu aðila á Vesturlandi, Kjós, Vestfjörðum, Húnavatnssýslum, Skagafirði eða Eyjafirði eiga þáttökurétt á mótinu og er miðað við að lágmarki 25% eignarhlut. Það er því mikilvægt að eigendur kynbótahrossa fari yfir upplýsingar um heimilisfang sitt í heimaréttinni í WorldFeng en það er hægt að lagfæra þær upplýsingar í flipanum Um mig í heimaréttinni ef þær eru ekki réttar. Þetta þarf að gera áður en sýningar byrja í vor.
Ákveðinn fjöldi efstu hrossa í hverjum flokki byggt á aðaleinkunn þeirra eiga þátttökurétt á mótinu (sjá fjölda í töflu hér að neðan). Miðað er við að 86 kynbótahross verði á mótinu. Þegar kynbótasýningarnar byrja í vor verður birtur stöðulisti í WorldFeng sem sýnir hvaða hross eru inni á mótinu hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið þá er þeim öllum heimil þátttaka á mótinu. Eins verða eigendur hrossa sem vinna sér þátttökurétt á mótinu en ætla sér ekki að mæta með þau af einhverjum ástæðum beðnir um að láta vita fyrir 24. júní, þannig að hægt sé að bjóða hrossum sem eru neðar á listanum þátttöku á mótinu.
Fjöldi kynbótarhrossa á FM 2025:
Heimsmeistaramót í Sviss
Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í Sviss dagana 4. – 10. ágúst. Stefnt er að því að 6 kynbótahross fari fyrir hönd Íslands á mótið eins og verið hefur, í flokkum stóðhesta og hryssna; fimm, sex og sjö vetra og eldri. Val kynbótahrossa á HM verður að liggja fyrir 1. júlí í ár og verður því valið úr kynbótahrossum sem sýnd verða á sýningum á undan þeirri dagsetningu. Efstu hross sem eru í boði í hverjum flokki verða valin á mótið hvar sem þau eru sýnd í heiminum svo fremi sem þau séu fædd á Íslandi.
/okg