Fjósloftið: Fjarfundir fyrir kúabændur

Í ljósi aðstæðna hefur RML ákveðið að prófa fjarfundi fyrir kúabændur og verður fyrsti fundurinn á morgun, miðvikudag 15. apríl kl. 13:00. Notað verður fjarfundakerfið Microsoft Teams og ganga fundirnir undir heitinu Fjósloftið en þar vísað til þess að á fjósloftinu fara oft fram skemmtilegar umræður auk þess sem segja má að fundirnir verði í loftinu. Um er að ræða stutta fundi þar sem haldin verður 10-15 mínútna framsaga og fylgt eftir með 10-15 mínútna umræðum. Þetta er tilraun og verður framhaldið til skoðunar með hliðsjón af hvernig tekst til.

Á vaðið mun ríða Sigtryggur Veigar Herbertsson en hann ætlar að ræða um atferli kúa í lausagöngufjósum. Fundurinn verður á morgun, miðvikudag 15. apríl kl. 13.00.

Til þess að tengjast fundinum er hægt að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Athugið að til þess að geta tekið þátt er ekki nauðsynlegt að vera með Microsoft Teams uppsett í tölvunni.

Miðvikudaginn 22. apríl mun svo Jóna Þórunn ræða um hjarðstýringu í mjaltaþjónafjósum.

Nánar:

Atferli kúa í lausagöngufjósum – tengjast fundi