Flutningur á netkerfi - truflanir á sambandi - þriðjudaginn 18. október

Vegna vinnu við flutninga á netkerfi RML þarf að endurræsa/slökkva á netkerfinu og því geta orðið truflanir á ýmsum hugbúnaði og kerfum sem RML og BÍ halda úti.
Vinnan við flutningana mun eiga sér stað á morgun 18. október kl 12:15 og mun vinnan standa yfir í allt að korter eða frá kl. 12:15-12:30.
Mikilvægt er að þeir sem eru að vinna við kerfin visti allt niður sem verið er að vinna í fyrir kl. 12:15 og skrá sig út úr kerfunum. Kl. 12:30 ætti að vera óhætt að skrá sig inn á kerfin að nýju.

Kerfisstjórar RML

/hh