Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir forritara sem gæti sinnt fjölbreyttum þróunar- og hugbúnaðarverkefnum í landbúnaði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þátttaka í þróunarteymum RML sem sinna hugbúnaðargerð og upplýsingatækni
- Forritun og hugbúnaðargerð
- Prófanir
- Vinna við Oracle gagnagrunna
- Önnur verkefni s.s. líkanagerð í Excel og annað með aðstoð gervigreindar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun kostur
- Þekking eða framhaldsmenntun á sviði tölvunarfræði eða verkfræði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og góð þjónustulund
- Þekking og reynsla í eftirfarandi er æskileg
- Python (Django, Flask)
- Oracle (PL/SQL)
- Javascript, jQuery, React o.fl.
- Fram- og bakendaforritun
- 3+ ára starfsreynsla æskileg
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á tölvunarfræði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að þróun á hvers kyns tæknilausnum fyrir landbúnað. Æskilegt að umsækjandi búi á Akureyri en er þó ekki skilyrði.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfstöðvar eru dreifð um landið. Við bendum áhugasömum á að sótt er um starfið í gegnum vef RML og jafnframt er á heimasíðunni hægt að kynna sér starfsemina enn frekar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar. Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson framkvæmdastjóri klk@rml.is og Þorberg Þ. Þorbergsson verkefnastjóri á fjármála og tæknisviði thorberg@rml.is.
Sjá nánar:
Sækja um starf hjá RML
/okg