Forskráning á DNA hylkjum

Þau sýni sem afgreidd voru frá RML fyrir áramót og fyrri hluta janúar eru með Íslenska erfðagreiningu skráða sem greiningaraðila. Nú hefur verið skipt um greiningaraðila og öll sýni sem forskráð eru þessa dagana eru send til greiningar hjá Matís. Þetta hefur aðeins vafist fyrir notendum þegar þau forskrá sýni í Fjárvís, þar sem greiningaraðilinn er skráður Íslensk erfðagreining og því er ekki hægt að breyta, en öll sýnin eru send til greiningar í Matís. Notendur þurfa þó ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu, þar sem greiningaraðilinn breytist sjálfkrafa þegar sýnin eru send frá starfsstöð til Matís. Þetta er einungis tímabil núna þegar Matís er nýtekið við greiningum, en öll hylki sem afgreidd hafa verið frá RML eftir miðjan janúar fá Matís sem sjálfgefinn greiningaraðila.

/okg