Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998.
Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni.
Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í íslenska hrossastofninum, verndun erfðafjölbreytileika stofnsins og/eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar.
Fagráð tekur ákvarðanir um styrkveitingar í ágúst 2023. Nánari upplýsingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur til að skila inn umsóknum er til 20. ágúst 2023. Umsóknareyðublöð má finna heimasíðu Bændasamtaka Íslands og prentuðum eintökum má skila á heimilisfang Bændasamtaka Íslands:
Fagráð í hrossarækt
Borgartún 25
105 Reykjavík
Sjá nánar:
Eyðublöð á vef Bændasamtaka Íslands
/okg